Indversk kvikmyndahátið verður haldin í Bíó Paradís dagana 8-13 april. Hátíðin er samstarfsverkefni Vina Indlands, Bíó Paradísar og Sendiráðs Indlands á Íslandi. Þetta er önnur Indverska kvikmyndahátiðin sem Vinir Indlands koma að. Upplýsingar um myndirnar sem sýndar verða á hátíðinni má finna á heimasíðu kvikmyndahátíðarinnar indianfilmfestival.is
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: mars 2014
Aðalfundi Vina Indlands frestað
Aðalfundi Vina Indlands sem boðaður hafði verið þann 15. mars n.k. er frestað um óákveðin tíma þar sem skemmdir á húsnæði og innbúi að Barónsstíg 3 eru það miklar að ekki er fundarfært þar að sinni.
Allt á floti
Það óhapp varð þann 3. mars sl., þegar verið var að grafa fyrir húsgrunni í nágrenni menningarmiðstöðvarinnar Múltikúlti að Barónsstíg 3 að grafa reif upp lagnir með þeim afleiðingum að heitavatnslögn inn í húsnæði Múltikúlti fór í sundur. En Vinir Indlands hafa aðsetur í þessu húsnæði. Það þarf varla að fjölyrða um afleiðingarnar þess þegar 5 cm djúpt sjóðandi heitt vatn flýtur um allt húsnæðið með tilheyrandi gufusuðu. Miklar skemmdir urðu á húsnæðinu og innbúi. Félagið Vinir Indlands varð hins vegar ekki fyrir miklu tjóni í þessum hamförum. Enda hefur starf félagsins gengið út á annað en það að félagið hafi verið að safna að sér veraldlegum munum.