Námskeið - Indversk menning og samfélag
- Vinir Indlands
- Feb 18
- 1 min read
Updated: Mar 23
Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir námskeiði sem hefst 4. mars 2025. Námskeiðið heitir: Indversk menning og samfélag II. Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi. Engrar forþekkingar er krafist.
Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna félagslega og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi þess hve landið er fjölbreytt verður stiklað á stóru og áhersla lögð á Vedaritin, Upanisjadritin og Itihasa. Einnig munu nemendur kynnast undirliggjandi heimspeki jóga og kirjunar og hvernig það nýtist til sjálfseflingar og vellíðanar. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu Endurmenntunar.
Hi, this is Parveen kumar from india