top of page
Search

Ferð á slóðir Jóns Indíafara

  • Vinir Indlands
  • Mar 5
  • 1 min read

Updated: Apr 23



Í undirbúningi var að fara í ferð til Indlands daganna 7 - 23 .ágúst 2025 á vegum Multikúltiferða sem er félag sem hefur tengsl við Vini Indlands. Núna hefur verið ákveðið að fresta þessari ferð til janúar 2026.


Í ferðinni verður fetað í fótspor Jóns Indíafara og við heimsækjum meðal annars Kalkútta og Rajasthan í norðri og Madurai, Pondicherry, danska virkið Tarangambadi í suðri auk þess að njóta sólarupprásar og sólseturs á syðsta odda Indlands í Kanyakumari, þar sem Indlandshaf, Arabíuhaf og Bengalflói mætast. Mögulegt er að lengja ferðina og nota 5 auka daga til þess að stunda jóga og hugleiða í Auroville. En Auroville er staðsett nálægt borginni Pondicherry sem er í fyrrverandi nýlendu Frakka á Indlandi. Nafnið Pondycherry er afbökun Frakka á tamilska bæjarheitinu sem í íslenski þýðingur væri Nýji-bær. En gamli bærinn (Arikamedu) er sunnan við Pondicherry en þar var höfn frá fornu fari (1000 fyrir Krist til 100 eftir Krist). Fornar grískar og rómverskar mynjar hafa m.a. fundist þar. Í suður Indlandi eru að finna einnig merkar forminjar um menningu suðar Indlands sem er svolítið fráburðin menningu Norður-lndlands sem einnig verður könnuð í þessari ferð. Þetta er áhugaverð ferð þar sem áhugaverðir staðir og menning Indlands verður skoðuð. Nánari upplýsingar um ferðina má finna hér á heimasíðu Múltikúlti ferða.

 
 
 

Comments


...

© 2025 Vinir Indlands. Powered and secured by Wix

bottom of page